Icelandic
Birt: 2017-04-27 14:00:00 CEST
Reykjavíkurborg
Reikningsskil

Reykjavíkurborg ársreikningur 2016

Ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2016 var vísað í borgarráði í dag, fimmtudaginn 27. apríl, til fyrri umræðu í borgarstjórn.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 2.637 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 475 mkr á árinu. Niðurstaðan er því 2.162 mkr betri en gert var ráð fyrir. Rekstur allra málaflokka var innan fjárheimilda.  Betri rekstrarniðurstaða skýrist einkum af lægri rekstrarkostnaði, sem var 946 mkr lægri en áætlun gerði ráð fyrir og hærri rekstrartekjum sem voru 257 mkr umfram áætlun.  Einnig voru fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 1.132 mkr lægri en áætlun gerði ráð fyrir.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 2.860 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 1.830 mkr eða 1.030 mkr umfram áætlun.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 26.372 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 11.673 mkr.

Rekstrarniðurstaðan er því 14.699 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Öll B-hluta fyrirtæki skiluðu jákvæðri rekstrarniðurstöðu.  Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja annars vegar til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og hins vegar lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna hagstæðrar gengisþróunar, gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu og lægri verðbólgu en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 20.823 mkr sem er 1.790 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 535.478 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 290.465 mkr og eigið fé var 245.013 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 13.477 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 45,8% en var 42,6% árið áður.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

   

 

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321.


Reykjavikurborg arsreikningur 2016.pdf
Reykjavikurborg - Skyrsla Fjarmalaskrifstofu me arsreikningi 2016.pdf