English Icelandic
Birt: 2017-03-06 16:30:14 CET
Icelandair Group hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Flutningatölur febrúar 2017

Í febrúar flutti Icelandair rúmlega 200 þúsund farþega og voru þeir 11% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 18% og sætanýting var 75,9% samanborið við 79,0% í sama mánuði í fyrra. Farþegar Flugfélags Íslands voru tæplega 23 þúsund í febrúar og fjölgaði um 2% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 29% samanborið við febrúar 2016 og skýrist það af flugi til Aberdeen sem flogið er í samstarfi við Icelandair og hófst í mars 2016. Sætanýting nam 68,2%. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 13% frá því á síðasta ári. Skýrist það af verkfalli sjómanna á Íslandi sem hefur haft í för með sér samdrátt í útflutningi á fiski.  Herbergjanýting á hótelum félagsins jókst á milli ára var 85,6% samanborið við 84,0% í fyrra.

 

ICELANDAIR FEB 17 FEB 16 BR. (%) ÁTÞ 17 ÁTÞ 16 BR. (%)
Fjöldi farþega 200.304 180.749 11% 406.038 354.574 15%
Sætanýting 75,9% 79,0% -3,1 %-stig 74,7% 76,6% -1,9 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 772,8 652,7 18% 1.628,0 1.353,7 20%
             
FLUGFÉLAG íSLANDS FEB 17 FEB 16 BR. (%) ÁTÞ 17 ÁTÞ 16 BR. (%)
Fjöldi farþega 22.543 22.044 2% 42.819 42.443 1%
Sætanýting 68,2% 77,7% -9,5 %-stig 65,4% 73,8% -8,5 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 11,3 8,8 29% 22,4 17,8 26%
             
LEIGUFLUG FEB 17 FEB 16 BR. (%) ÁTÞ 17 ÁTÞ 16 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 94,4% 98,0% -3,6 %-stig
Seldir blokktímar 1.871 2.022 -7% 3.718 4.170 -11%
             
FRAKTFLUTNINGAR FEB 17 FEB 16 BR. (%) ÁTÞ 17 ÁTÞ 16 BR. (%)
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.525 8.661 -13% 14.922 17.291 -14%
             
HÓTEL FEB 17 FEB 16 BR. (%) ÁTÞ 17 ÁTÞ 16 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 25.116 22.765 10% 52.923 47.100 12%
Seldar gistinætur 21.511 19.117 13% 40.745 33.899 20%
Herbergjanýting 85,6% 84,0% 1,7 %-stig 77,0% 72,0% 5,0 %-stig

  

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - February 2017.pdf