Icelandic
Birt: 2017-02-24 10:26:22 CET
Eik fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Birting ársuppgjörs 2016 - Kynningarfundur 1. mars

Eik fasteignafélag hf. mun birta ársuppgjör fyrir árið 2016 eftir lokun markaða þriðjudaginn 28. febrúar 2017.

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 1. mars 2017 klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980.