Icelandic
Birt: 2017-02-16 17:26:30 CET
Síminn hf.
Reikningsskil

Síminn hf. - Hagræðing og skýr framtíðarsýn skila Símanum góðri uppskeru

   Helstu niðurstöður í rekstri á fjórða ársfjórðungi 2016

  • Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2016 voru 7.945 milljónir króna samanborið við 8.236 milljónir króna á sama tímabili 2015. Samdráttur tekna skýrist meðal annars af sölu á dótturfélögunum Staka og Talentu.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 2.103 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2016 samanborið við 1.654 milljónir króna á sama tímabili 2015. EBITDA hlutfallið var 26,5% fyrir fjórða ársfjórðung 2016 en var 20,1% á sama tímabili 2015.
  • Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2016 var 601 milljón króna samanborið við 679 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.241 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2016 en var 1.047 milljónir króna á sama tímabili 2015. Eftir vexti og skatta var handbært fé frá rekstri 2.106 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2016 en 1.054 milljónir króna á sama tímabili 2015 og hækkar um 1.052 milljónir króna milli ára.
  • Vaxtaberandi skuldir voru 22,9 milljarðar króna í lok árs 2016 en voru 24,2 milljarðar í árslok 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 19,3 milljarðar króna í lok árs 2016 en 20,1 milljarðar króna í lok árs 2015.  
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 370 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2016 en voru 265 milljónir króna á sama tímabili 2015. Fjármagnsgjöld voru 584 milljónir króna, fjármunatekjur voru 232 milljónir króna og gengistap 18 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 53,5% í lok árs 2016 og eigið fé 34,3 milljarðar króna. 

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við hjá Símanum horfum stolt á afrakstur síðasta árs. Míla náði takmarki sínu um að veita 30 þúsund heimilum tækifæri á ljósleiðaratengingu fyrir árslok. Sensa átti veltumesta ár sitt frá upphafi. Síminn hélt vel stöðu sinni á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði ásamt því að heildsölustarfsemi gekk vel. Þrýstingur var hins vegar á einingaverð. Rekstrarkostnaður samstæðunnar hefur nú á einu ári verið lækkaður um ríflega 800 milljónir króna á ársgrundvelli.

Árið hófst með krefjandi hætti. Verð lækkaði bratt á lykilvörum og laun hækkuðu langt umfram áætlanir. Gripið var til fjölmargra aðgerða til hagræðingar og meðal annars fækkaði starfsfólki Símans hf. um 14% á árinu. Þessi ólgusjór kom þó ekki í veg fyrir samheldni innan Símans og skýrist árangurinn á síðari hluta ársins af einbeitni starfsfólks við að ná settum markmiðum.

Sala dótturfélaga á árinu skerpti samstæðuna, kjarni hennar felst nú í þremur stærstu fyrirtækjunum, Símanum, Mílu og Sensa. Rekstur tveggja smárra dótturfélaga, On-Waves og Sensa DK, gekk illa á árinu og drógu þau rekstrarárangur samstæðunnar niður. Neikvæð áhrif þessara eininga verða mun minni á þessu ári.

Við horfum bjartsýn á nýja árið. Fjárfest var markvisst síðustu mánuði ársins og á meiri hraða en framan af ári. Sterkt vöruframboð Símans fékk verðskuldaða athygli á markaðnum. Samanburður seinni helminga síðustu tveggja ára sýnir glöggt að samstæðan er á réttri leið.

Síminn státar nú af nýlegri viðurkenningu fyrir hraða á farsímanetinu, vaxandi vinsældum sjónvarpsþjónustu Símans, öflugum innviðum og samkeppnishæfu verði.“

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is)

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is)


Siminn 31.12.2016.pdf
Siminn hf - Afkomutilkynning 4F 2016.pdf
Siminn - Lykiltolur 31.12.2016.pdf