Icelandic
Birt: 2017-01-31 17:18:00 CET
Origo hf.
Reikningsskil

Ársuppgjör Nýherja hf. 2016 - Sterkt ár að baki og stöðugleiki í rekstri

16% tekjuvöxtur var á fjórða ársfjórðungi, EBITDA á árinu var 1.021 mkr og heildarhagnaður 383 mkr

REYKJAVÍK - 31. janúar 2017 – Nýherji kynnti í dag ársuppgjör félagsins 

Helstu upplýsingar:

  • Sala á vöru og þjónustu nam 4.233 mkr á fjórða ársfjórðungi (15,5% tekjuvöxtur frá F4 2015) og 14.788 mkr á árinu 2016 (10,9% tekjuvöxtur frá 2015) [F4 2015: 3.663 mkr, 2015: 13.332 mkr]
  • Framlegð nam 1.108 mkr (26,2%) á fjórða ársfjórðungi og 3.784 mkr (25,6%) á árinu 2016 [F4 2015: 956 mkr (26,1%), 2015: 3.421 mkr (25,7%)] 
  • EBITDA nam 335 mkr (7,9%) á fjórða ársfjórðungi og 1.021 mkr (6,9%) á árinu 2016 [F4 2015: 315 mkr (8,6%), 2015: 1.008 (7,6%)]
  • Heildarhagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 180 mkr og 383 mkr á árinu 2016 [F4 2015: 135 mkr, 2015: 328 mkr]
  • Hagnaður á hlut 0,83 [2015: 0,84]
  • Stjórn félagsins leggur til að ekki verður greiddur út arður til hluthafa á árinu 2017
  • Aðalfundur félagsins verður haldinn 3. mars 2017
  • Eiginfjárhlutfall 34% í lok árs en var 28% í lok árs 2015
  • Mikil tekjuvöxtur í hugbúnaðartengdri starfsemi
  • Nýherji tók við rekstri upplýsingatæknikerfa Arion banka við lok fjórða ársfjórðungs
  • Aukin verkefni í kjarnabankalausnum; Ný verkefni fyrir Landshypotek og innleiðing hjá SBAB í Svíþjóð

Finnur Oddsson, forstjóri:

„Við erum ánægð með nýliðið rekstrarár hjá Nýherjasamstæðunni, enda með þeim betri í sögu félagsins.  Þrátt fyrir rólega byrjun á árinu var tekjuvöxtur vel viðunandi eða um 11% og var hann mestur í hugbúnaðartengdri starfsemi. Þar má nefna að viðskiptavinir Tempo eru nú nálægt 10.000 og  jukust tekjur þar um 40% á milli ára. Svipaða sögu má segja af Applicon AB, TM Software og hugbúnaðarsviði Nýherja þar sem tekjuaukning er á bilinu 20-45%.

Þessi árangur náðist þrátt fyrir töluverðar hækkanir á launum vegna kjarasamninga og umtalsverða fjárfestingu í lausnaþróun, þjónustu og öflugri rekstarinnviðum. Þessi fjárfesting gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur og það er afar ánægjulegt að sjá uppskeru umbótastarfs síðustu missera í spennandi samstarfi við fjölda nýrra viðskiptavina, t.a.m. SBAB bankans í Svíþjóð og Arion banka hér heima. Við finnum fyrir auknum áhuga fyrirtækja og stofnana á úthýsingu upplýsingatæknirekstrar. Þetta er jákvæð þróun, enda höfum við ekki áður verið  betur í stakk búin til að sinna slíkri þjónustu fyrir viðskiptavini okkar á hagkvæman og öruggan hátt. 

Rekstur Nýherja hefur nú verið í ágætu jafnvægi þrjú síðustu ár, en á þeim tíma hefur eiginfjárstaða styrkst til muna. Þrátt fyrir ögrandi rekstrarumhverfi framundan, m.a. vegna samningsbundinna launahækkana, þá gerum við ráð fyrir að grunnrekstur samstæðunnar verði áfram stöðugur.  Við horfum svo til þess að fjárfesta í og nýta okkur fjölda spennandi tækifæra hjá Nýherja, Applicon, TM Software og Tempo. Við erum því í sóknarhug og teljum horfur almennt góðar.

Sjá viðhengi.


2017.01.31 Frettatilkynning - Arsuppgjor Nyherja hf. 2016.docx.pdf
Nyherji hf. arsreikningur 31.12. 2016.pdf