Icelandic
Birt: 2016-12-21 14:10:20 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. - Samþykkt kauptilboð í fasteignafélagið U6 ehf.

Þann 21. desember 2016 var undirritað kauptilboð á milli Regins hf. og eigenda fasteignafélagsins U6 ehf., um kaup Regins á öllu hlutafé í félaginu. Kauptilboðið er m.a. með fyrirvörum um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Fyrirhuguð kaup á U6 miðast við að heildarvirði (EV) eignasafns félagsins sé 2.700 m.kr. Vænt arðsemi fjárfestingarinnar fyrir árið 2017 (e. yield) er um 6,7%.

Fasteignasafnið samanstendur af tveimur fasteignum, Urðarhvarfi 6 og Víkurhvarfi 8 í Kópavogi. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins er 10.290 fermetrar, að stærstum hluta skrifstofuhúsnæði. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins er 100% og eru núverandi leigutekjur um 224 m.kr. á ársgrundvelli. Leigutakar eru þrír og þar af er Mannvit hf., stærsti leigutakinn með langtímaleigusamning. Ef af kaupunum verður stækkar eignasafn Regins um rúm 3% miðað við fermetrafjölda.

Reginn tilkynnti þann 17. nóvember s.l. um samkomulag um kaup á eignarhlut í FM-húsum ehf., ásamt meðfjárfestum, og stendur yfir áreiðanleikakönnun á félaginu, auk þess sem þau kaup eru jafnframt háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Regin er heimilt samkvæmt kauptilboðinu um U6 ehf., að framselja réttindi sín og skyldur yfir til félagsins FM-hús ehf., sem yrði þá endanlegur kaupandi að U6 ehf.

Ráðgjafi Regins í viðskiptunum er Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262