English Icelandic
Birt: 2016-11-15 16:02:07 CET
NASDAQ Iceland hf.
Markaðstilkynningar

Nasdaq Iceland samþykkir töku hlutabréfa í Skeljungi hf. til viðskipta á Aðalmarkaði að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár

Nasdaq Iceland hf. („Kauphöllin“) hefur samþykkt umsókn stjórnar Skeljungs hf. („Skeljungur“) (kt. 590269-1749) um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga á Nasdaq Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hlutabréf Skeljungs á Aðalmarkaði verði 9. desember 2016. Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.