Icelandic
Birt: 2016-11-01 15:51:18 CET
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf.: Uppgjör 3. ársfjórðungs 2016 - kynningarfundur 9. nóvember

Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2016 eftir lokun markaða þriðjudaginn 8. nóvember 2016.

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 9. nóvember 2016 klukkan 16:00 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980.