Icelandic
Birt: 2016-11-01 13:29:15 CET
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

Viðskiptayfirlit október 2016 – Nasdaq Iceland

Reykjavík, 1. nóvember, 2016 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir október 2016 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í október námu 56.369 milljónum eða 2.684 milljónum á dag. Það er 6% hækkun frá fyrri mánuði, en í september námu viðskipti með hlutabréf 2.542 milljónum á dag.  Þetta er 3% hækkun á milli ára (viðskipti í október 2015 námu 2.614 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 13.601 milljón, Haga (HAGA), 7.125 milljónir, Marel (MARL), 6.344 milljónir, N1 (N1), 5.262 milljónir, og Símans (SIMINN), 4.806 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 4,3% á milli mánaða og stendur nú í 1.717 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 23,9% (24,0% á árinu), Íslandsbanki með 20,0% (17,2% á árinu), og Landsbankinn með 19,3% (22,6% á árinu).  

·         Í lok október voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 979 milljörðum króna (samanborið við 962 milljarða í september).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 112 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 5,3 milljarða veltu á dag. Þetta er 22% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í september námu 6,9 milljörðum á dag), en 39% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í október 2015 námu 8,7 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 99,8 milljörðum, viðskipti með íbúðabréf námu 3,5 milljörðum, og viðskipti með bankabréf námu 6,8 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 31 0124, 21,5 milljarðar, RIKB 22 1026, 19,3 milljarðar, RIKB 25 0612, 17,1 milljarður, RIKB 20 0205, 16,9 milljarðar og RIKB 19 0226, 8,2 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 18,9% (18,4% á árinu), Landsbankinn með 18,6% (20,1% á árinu) og Arion banki með 18,4% (17,7% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,5% í október og stendur í 1.230 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,2% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,1%.                  

         

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,700 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 10 billjón Bandaríkjadala og um það bil 18,000 viðskiptavina. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         868 9836


2016_1101_Viskiptayfirlit fyrir oktober 2016.pdf


hlutdeild kauphallaraðila hlutabréf okt
hlutdeild kauphallaraðila skuldabréf okt