Icelandic
Birt: 2016-10-26 17:32:33 CEST
Vátryggingafélag Íslands hf.
Reikningsskil

Vátryggingafélag Íslands hf. - árshlutauppgjör

Afkoma af fyrstu níu mánuðum ársins 2016

Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2016 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 26. október 2016.  Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Helstu niðurstöður

  • Hagnaður af rekstri nam 592 m.kr. samanborið við 1.989 m.kr. hagnað fyrir sama tímabil 2015.
  • Samsett hlutfall var 102,1% en var 104,7% á sama tíma í fyrra.
  • Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu 1.038 m.kr. samanborið við 2.973 m.kr. 2015.
  • Gjaldmiðlatap vegna eigna sem tilheyra erlendri starfemi nam 529 m.kr. á tímabilinu.

Jakob Sigurðsson, forstjóri

Það er jákvætt að sjá hve mikið innlend iðgjöld hafa aukist það sem af er ári, eftir nokkurra ára stöðnun, eða um  11,2% frá sama tíma í fyrra. Vöxturinn helgast bæði af hærra meðaliðgjaldi og talsverðri fjölgun skírteina þar sem nýjum viðskiptavinum fjölgar og núverandi eiga í meiri viðskiptum við okkur en áður.   Samsett hlutfall var nokkru lægra en það var á sama tíma í fyrra sem er vel en afkoma af vátryggingastarfseminni var þó ekki í samræmi við væntingar.  Ávöxtun fjárfestingaeigna gekk nokkuð vel við erfiðar markaðsaðstæður, og nam 3,1%.  Gjaldmiðlatap af eignum sem tilheyra erlendri starsemi félagsins hefur veruleg áhrif á afkomu fjárfestingastarfseminnar, en það nam 529 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins.“ 

Arðgreiðsla og eigin kaup

Aðalfundur félagsins sem haldinn var þann 16. mars s.l. samþykkti arðgreiðslu að fjárhæð 2.067 m.kr. sem greidd var til hluthafa þann 15. apríl s.l.  Félagið keypti eigin hluti fyrir 574 milljónir króna á fyrstu níu mánuðunum og átti alls um 3,2% af heildar eigin fé í lok september.

Gjaldþolshlutfall í lok september var 1,83.

Víkjandi skuldabréf – skráning á Aðalmarkað NASDAQ Iceland

Í lok febrúar gaf félagið út víkjandi skuldabréf að nafnverði 2.500 m.kr. en útgáfa skuldabréfanna er liður í endurskipulagningu á fjármagnsskipan félagsins og tilheyrir hún eiginfjárþætti 2.  Skuldabréfin voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf. þann 29. júlí s.l.

Horfur

Gert er ráð fyrir að áfram verði ágætur vöxtur í innlendum iðgjöldum á árinu en ólíklegt er að samsett hlutfall verði í árslok lægra en það var fyrir árið 2015.

Kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla 3, 5. hæð, þann 27. október n.k. kl. 8:30. Þar kynnir Jakob Sigurðsson forstjóri VÍS afkomu félagsins og svarar spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á vef VÍS: www.vis.is

Fjárhagsdagatal

Viðburður                                Dagsetning:

Þriðji ársfjórðungur           26. október 2016

Ársuppgjör 2016               23. febrúar 2017

Aðalfundur 2017                   16. mars 2017

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Jakob Sigurðsson forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.

 

 


Frettatilkynning um afkomu VIS 2016 9M.pdf
Samstuarshlutareikningur 30.09.2016.pdf