Icelandic
Birt: 2016-10-03 16:13:30 CEST
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

Viðskiptayfirlit september 2016 – Nasdaq Iceland

 

Reykjavík, 3. október, 2016 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir september 2016 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í september námu 55.932 milljónum eða 2.542 milljónum á dag. Það er 12% hækkun frá fyrri mánuði, en í ágúst námu viðskipti með hlutabréf 2.268 milljónum á dag.  Þetta er 45% hækkun á milli ára (viðskipti í september 2015 námu 1.754 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 11.976 milljónir, Haga (HAGA), 7.024 milljónir, Reita fasteignafélags (REITIR), 5.236 milljónir, Marel (MARL), 4.480 milljónir, og Sjóvár-Almennra trygginga (SJOVA), 4.245 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 4,8% á milli mánaða og stendur nú í 1.646 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 22,2% (24,0% á árinu), Landsbankinn með 21,0% (23,1% á árinu), og Íslandsbanki með 17,8% (16,8% á árinu).

·         Í lok ágúst voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 962 milljörðum króna (samanborið við 1.002 milljarða í ágúst).

·         Þess má geta að viðskipti með hlutabréf þriggja íslenskra félaga, Sjóvár hf., N1 hf. og Regins hf., voru mest allra í flokki lítilla félaga (e. small cap) á aðalmörkuðum Nasdaq Nordic (Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, Helsinki, Íslandi) í september, sjá nánar í sameiginlegu yfirliti fyrir Nasdaq Nordic kauphallirnar hér.

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 151 milljarði í síðasta mánuði sem samsvarar 6,9 milljarða veltu á dag. Þetta er 4% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í ágúst námu 7,2 milljörðum á dag), en 34% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í september 2015 námu 10,4 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 127,3 milljörðum, viðskipti með íbúðabréf námu 6,6 milljörðum, og viðskipti með bankabréf námu 11,5 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 25 0612, 22,9 milljarðar, RIKB 31 0124, 21,3 milljarðar, RIKB 22 1026, 21,3 milljarðar, RIKB 20 0205, 20,7 milljarðar og RIKB 19 0226, 16,5 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 22,4% (18,4% á árinu), Arion banki með 19,7% (17,6% á árinu) og Kvika banki með 19,7% (20,7% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,26% í september og stendur í 1.224 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,04% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,43%.                        

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,700 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.3 billjón Bandaríkjadala og um 18,000 viðskiptavina. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhanns
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         s. 8689836


2016_1003_Viskiptayfirlit fyrir september 2016.pdf