Icelandic
Birt: 2016-05-31 10:54:15 CEST
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Samkomulag milli Kópavogsbæjar, Smárabyggðar og Regins hf., um uppbyggingu Smárabyggðar.

Undirritað hefur verið þríhliða samkomulag milli Kópavogsbæjar, Smárabyggðar ehf. og Regins hf, fyrir hönd Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf.  Samkomulagið nær til áætlunar um undirbúning og uppbyggingu svæðisins sunnan Smáralindar.

Deiliskipulag svæðisins hefur verið samþykkt  af skipulagsyfirvöldum og tekur endanlega gildi eftir auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda. Það er áformað að á skipulagssvæðinu verði byggðar rúmlega 500 íbúðir og um 13.000 m2 fyrir atvinnuhúsnæði (verslun og þjónustu). Áætlað heildar byggingarmagn er um 84.000 m2 auk bílakjallara.

Markmið samkomulagsins er:

  • Að styrkja svæðið sem öflugt, vistvænt og eftirsóknarvert íbúðar- og verslunarsvæði í miðju höfuðborgarsvæðisins og að nýta núverandi innviði bæjarfélagsins betur.
  • Að gera áætlun um áfangaskiptingu uppbyggingar þannig að henni verði lokið innan 8 ára.

Aðkoma Regins hf. er með þeim hætti að félagið er eigandi um 35% af byggingarétti verkefnisins í gegnum dótturfélag sitt,  Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf.

Það er mat félagsins að uppbygging á Smárabyggðarsvæðinu verði mikil lyftistöng fyrir svæðið í heild, bæði þegar horft er til núverandi og væntanlegra íbúa sem og fyrir verslun og þjónustu á svæðinu.

Eins og fram kom á uppgjörs kynningu Regins fyrir fyrsta ársfjórðung 2015 http://www.reginn.is/fjarfestavefur/uppgjor/2015/ , þá eru verðmæti í byggingarrétti svæðisins talið geta gefið félaginu verulegar tekjur á næstu 7 árum. Þar var áætlað verðmæti byggingaréttar um 1 ma. kr. Félagið telur það varlega metið.

Aðkoma Regins að verkefninu hefur ekki fjárhagsleg áhrif á rekstrarafkomu félagsins að öðru leyti en því að eignarhlutur félagsins hefur ekki verið færður til bókar á reikningum þess þar sem óvissa hefur verið um verkefnið. Með undirritun samkomulagsins hefur sú óvissa minnkað verulega.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262