Eik fasteignafélag hf.: Eik fasteignafélag hf. boðar til fundar eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 12 01 Fundur Eikar með eigendum skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 12 01 verður haldinn klukkan 9:00 þann 7. júní 2016 næstkomandi í fundarsalnum Goðafoss á Hótel 1919, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá klukkan 8:30. Dagskrá: 1. Tillaga um skilmálabreytingu EIK 12 01 í átta liðum: a. Um sérstakt skilyrði er varðar kaup á eignum; b. Um veðgæsluaðila; c. Um hlutverk veðgæsluaðila; d. Um eftirlitsaðila; e. Um sérstakt skilyrði er varðar niðurfærslu hlutafjár; f. Um arðgreiðslur; g. Um tryggingar (veðsetningu leigutekna); h. Nýtt sérstakt skilyrði um samning við veðgæsluaðila og eftirlitsaðila; Atkvæðisréttur skuldabréfaeigenda EIK 12 01 miðast við stöðu í lok dags þann 23. maí 2016. Skráning fundargesta, afhending atkvæðisseðla og fundargagna verður á fundarstað frá klukkan 8:30 á fundardegi. Tillaga Eikar fasteignafélags fyrir fundinn og umboðseyðublað er að finna í viðhengi. Frekari upplýsingar veita: - Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 590-2209 / 820-8980 - Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, fyrirtaekjaradgjof@islandsbanki.is, s. 440-4000 HUG#2014723
|