Icelandic
Birt: 2016-05-10 09:58:00 CEST
Sýn hf.
Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Framkvæmdastjóri Vodafone í Færeyjum lætur af störfum

Stjórn P/F Kall (Vodafone í Færeyjum) og Gudny Langgaard, framkvæmdarstjóri félagsins, hafa komist að samkomulagi um starfslok hennar. Hún hefur gegnt starfi framkvæmdarstjóra frá því í júlí árið 2011. 

Bárður Nielsen, fjármálastjóri félagsins, mun taka tímabundið við sem framkvæmdastjóri uns ráðið hefur verið í stöðuna, en formlegt ferli til ráðningar framkvæmdastjóra verður sett af stað á næstu dögum.

P/F Kall er 100% í eigu Fjarskipta hf. - Vodafone á Íslandi.

HUG#2010996