English Icelandic
Birt: 2016-05-04 15:06:20 CEST
Arion banki hf.
Fyrirtækjafréttir

Arion banki greiðir niður skuldabréf um 31 milljarð króna

Þann 6. maí mun Arion banki greiða niður skuldabréf um 252.697.000 Bandaríkjadali, auk áfallinna vaxta, eða sem nemur um 31 milljarði íslenskra króna. Skuldabréfið nam 747.481.000 Bandaríkjadölum (97 milljarðar kr.) þegar það var gefið út í upphafi árs. Skuldabréfið er í eigu Kaupþings og var útgáfa þess  liður í aðgerðum sem snéru að afnámi fjármagnshafta.

Greiðslan er í samræmi við ákvæði skuldabréfsins sem kveða á um að Arion banki skuli greiða inn á bréfið gefi bankinn út skuldabréf í erlendri mynt eins og gert var þann 26. apríl þegar Arion banki gaf út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbankis, s: 856 7108.