Icelandic
Birt: 2016-04-15 17:55:26 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf.: Samningar nást við Fjarskipti hf. (Vodafone) um nýjar höfuðstöðvar

Eik fasteignafélag hf. og Fjarskipti hf. (Vodafone) hafa skrifað undir leigusamning um húsnæði Eikar fasteignafélags að Suðurlandsbraut 8, sem áður hýsti meðal annars Fálkann. Um er að ræða langtímaleigusamning á um 4.700 fermetra húsnæði, sem mun hýsa nýjar höfuðstöðvar og verslun Vodafone. Stefnt er að afhendingu húsnæðisins í áföngum fyrri hluta árs 2017.

Þróun á Suðurlandsbraut 8 er þegar hafin hjá Eik. Byggðar verða þrjár hæðir ofan á núverandi húsnæði, en fasteignin er í dag á þremur hæðum, alls um 3.800 fermetrar. Auk þess verður byggt bílastæðahús á þremur hæðum sem verður sameiginlegt með Suðurlandsbraut 10.

Samhliða framkvæmdum á Suðurlandsbraut 8 verður fasteignin að Suðurlandsbraut 10 einnig þróuð. Núverandi húsnæði Suðurlandsbrautar 10 er rúmlega 2.200 fermetrar en verður rúmlega 4.400 fermetrar eftir fyrirhugaðar framkvæmdir. Einnig verða byggðar þrjár hæðir ofan á Suðurlandsbraut 10.

Leigusamningurinn við Fjarskipti mun auka leigutekjur Eikar á ársgrundvelli um rétt rúmlega 2% miðað við útgefna rekstraráætlun 2016 á föstu verðlagi og gert er ráð fyrir að fjárfestingar og arðsemi verði í fullu samræmi við þær áætlanir. Áætlunina má finna á heimasíðu félagsins, www.eik.is/fjarfestar.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027

Eyjólfur Gunnarsson, framkvæmdastjóri útleigusviðs, eyjolfur@eik.is s. 590-2200 / 787 1159

HUG#2003966