Icelandic
Birt: 2016-02-29 16:48:14 CET
Eik fasteignafélag hf.
Ársreikningur

Eik fasteignafélag hf. : Ársreikningur Eikar fasteignafélags hf. 2015

  * Rekstrartekjur ársins námu 5.907 m.kr.

  * Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 4.173 m.kr.

  * Heildarhagnaður ársins nam 4.629 m.kr.

  * Handbært fé frá rekstri nam 2.343 m.kr. á árinu.

  * Bókfært virði fjárfestingareigna nam 67.625 m.kr. í árslok.

  * Matsbreyting var jákvæð á árinu um 4.168 m.kr.

  * Vaxtaberandi skuldir námu 41.746 m.kr. í árslok.

  * Eiginfjárhlutfall nam 33,8%.

  * Hagnaður á hlut var 1,34 kr.

Ársreikningur Eikar fasteignafélags var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 29. febrúar 2016.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri:

"Rekstur Eikar fasteignafélags gekk vel á árinu 2015 og var hagnaður af rekstri félagsins 4,6 milljarðar króna. Ánægjulegt var að sjá hve vel gekk að auka virðis-útleiguhlutfallið en það hækkaði um 2,2% á árinu. Mikil eftirspurn var á síðari hluta ársins eftir húsnæði í helstu viðskiptakjörnum höfuðborgarsvæðisins en 91% af fast-eignum félagsins eru staðsettar á því svæði."

Félagið hefur gefið út ársskýrslu félagsins, sem hefur að geyma ítarlegar upplýsingar um félagið og rekstur þess á árinu 2015 ásamt ársreikning. Skýrslan er meðfylgjandi þessari tilkynningu og má einnig finna á heimasíðu félagsins, www.eik.is.

Ársreikningur Eikar fasteignafélags hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).  Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralaust.

Tillaga um arðgreiðslu

Félagið hefur sett sér arðgreiðslustefnu um að greiða árlega út arð sem nemur 35% af handbæru fé frá rekstri hvers árs. Í samræmi við stefnuna leggur stjórn félagsins til við aðalfund, sem haldinn verður 12. apríl n.k., að greiddur verði út 820 m.kr. (0,24 kr. á hlut) arður til hluthafa á árinu 2016 vegna rekstrarársins 2015.

Horfur

Félagið hefur gefið út ítarlega rekstraráætlun fyrir árið 2016 sem hægt er að nálgast á heimasíðu félagsins, www.eik.is.

Fjárhagsdagatal 2016

Aðalfundur                                             12. apríl 2016

Árshlutauppgjör 1. ársfjórðungs 2015                   10. maí 2016

Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 2015                   30. ágúst 2016

Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2015                   8. nóvember 2016

Ársuppgjör 2015                                        28. febrúar 2017

Meðfylgjandi er ársskýrsla 2015 sem inniheldur ársreikning 2015 og fréttatilkynning með helstu niðurstöðum fjórða ársfjórðungs.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, í síma 861-3027 eða gardar@eik.is

Lýður H. Gunnarsson,  framkvæmdastjóri  fjármálasviðs,  í  síma  820-8980 eða lydur@eik.is

HUG#1990200


Arsskyrsla 2015.pdf
Frettatilkynning.pdf