Icelandic
Birt: 2016-02-10 10:09:40 CET
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf. : Undirritun kaupsamnings á Heimshótelum ehf. (Hótel 1919)

Í tilkynningu Eikar fasteignafélags hf. þann 14. október sl. kom fram að félagið hefði undirritað kauptilboð um kaup félagsins á öllu útgefnu hlutafé Heimshótela ehf.

Í dag, 10. febrúar 2016, hefur kaupsamningur verið undirritaður um ofangreind viðskipti. Umsamið kaupverð er 3,6 milljarðar króna (Enterprise value) fyrir allt útgefið hlutafé í Heimshótelum ehf., að teknu tilliti leiðréttinga samkvæmt skilmálum kaupsamningsins, þ.e. framangreint kaupverð miðast við að (i) við afhendingu sé félagið og Hótel 1919 ehf. skuldlaus og (ii) að til staðar séu í félaginu 110 m.kr. sem munu nýtast til betrumbóta á hótelinu. Kaupsamningurinn er háður fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins, Seðlabanka Íslands, þar sem seljandi er erlendur aðili, og Rezidor Hotels ApS.

Fasteignirnar sem um ræðir og eru í eigu Heimshótela ehf. eru Pósthússtræti 2, Tryggvagata 28 og Hafnarstræti 9-11 í Reykjavík. Allt hlutafé í Hóteli 1919 ehf., sem er 100% í eigu Heimshótela ehf., er hluti af kaupverðinu. Hótel 1919 ehf. er með langtímarekstrarsamning við alþjóðlegu hótelkeðjuna Rezidor Hotels ApS um rekstur hótelsins undir nafni Radisson Blu. Rekstrarsamningurinn felur það í sér að Rezidor Hotels stýrir og hefur eftirlit með rekstri hótelsins gegn tiltekinni þóknun en hagnaður félagsins rennur að öðru leyti til Eikar. Rekstrarsamningur af þessu tagi er lítt þekktur meðal fasteignaeigenda á Íslandi en er algengt rekstrarform meðal fasteignaeigenda erlendis.

Fasteignirnar eru tæpar 6 þúsund fermetrar að stærð og staðsettar í hjarta Reykjavíkur. Þar sem tekjur Heimshótela ehf. ráðast m.a. af verðlagningu hótelherbergja og herbergisnýtingu Hótels 1919 ehf. munu sveiflur verða á EBITDA félagsins. Áætlað er að "yield" kaupanna  verði um 8% við afhendingu.

Kaupin verða fjármögnuð með lántöku og handbæru fé félagsins. Félagið mun birta rekstrarspá síðar í febrúar fyrir árið 2016 þar sem tekið verður tillit til tekna vegna Heimshótela.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri:

"Það er ánægjuefni að tilkynna að ritað hafi verið undir kaupsamning á öllu hlutafé Heimshótela ehf. Um er að ræða frábæra eign á besta stað í höfuðborginni. Með kaupum á Heimshótelum ehf. (Hótel 1919) mun Eik eiga flestar fasteignir á reitnum sem afmarkast af Hafnarstræti, Tryggvagötu og Naustinu og passar því eignin einstaklega vel í eignasafn Eikar. "

 

Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027.

HUG#1984927