Icelandic
Birt: 2016-02-08 18:28:16 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Reginn hf.: Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Regins hf. á fasteignafélögunum Ósvör ehf. og CFV 1 ehf.

Reginn hf. undirritaði kaupsamning um kaup á fasteignafélögunum Ósvör ehf. og CFV 1 ehf. þann 30. desember 2015 sem innihélt m.a. fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að ekki séu forsendur til að aðhafast frekar vegna samruna Regins hf. og Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf. á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Um kaupin gildir enn fyrirvari um samþykki hluthafafundar Regins hf.  

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262