Eik fasteignafélag hf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum EIK 12 01 PwC er eftirlitsaðili skuldabréfaflokksins EIK 12 01. Eftirlitsaðili hefur m.a. það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstætt útreikninga útgefenda á sérstökum skilyrðum skuldabréfaflokksins. PwC framkvæmdi könnun á útreikningum sérstakra skilyrða skuldabréfaflokksins EIK 12 01. Niðurstaða könnunar PwC er sú að PwC staðfestir að skuldabréfaflokkurinn EIK 12 01 stenst öll fjárhagsleg- og tryggingarleg skilyrði skuldabréfaflokksins EIK 12 01 miðað við dagsetninguna 30.06.2015. Niðurstöður könnunarinnar má sjá í viðhengi. Nánari upplýsingar veitir Kolbeinn Friðriksson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf. Sími 5902209, tölvupóstur kolbeinn@eik.is. HUG#1951202
|