Icelandic
Birt: 2014-05-27 19:20:01 CEST
Reginn hf.
Reikningsskil

Árshlutareikningur Regins fyrstu þrjá mánuði ársins 2014

Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar 2014 til 31. mars 2014 var samþykktur af stjórn þann 27. maí.

  • Rekstrartekjur námu 1.031 milljón króna
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 618 milljónir króna
  • Bókfært virði fjárfestingareigna í lok tímabils er 40.697 m.kr. Matsbreyting á tímabilinu var 265 m.kr.
  • Hagnaður eftir tekjuskatt nam 397 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 284 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir voru 25.130 m.kr. í lok tímabilsins samanborið við 24.837 m.kr. í árslok 2013
  • Eiginfjárhlutfall er 33 %
  • Hagnaður á hlut fyrir tímabilið er 0,31 en var 0,19 fyrir sama tímabil í fyrra

Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.), fjöldi hluthafa þann 31. mars sl. voru 643.

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á fyrsta ársfjórðungi var góð og í samræmi við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 1.031 milljón króna og þar af námu leigutekjur 902 milljónum króna. Hækkun leigutekna frá sama tímabili fyrra árs eru 18,5%.

Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir / EBITDA var 618 milljónir sem samsvarar rúmri 18,2% hækkun samanborið við sama tímabil árið 2013.

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Eftir að kaup félagsins á Klasa Fasteignum ehf. ( RA 5 ehf.)  voru yfirstaðin á Reginn 54 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins er 221 þúsund. Útleiguhlutfall safnsins er um 96% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við gerð ársreiknings sem og í lok hvers uppgjörstímabils. Matsbreyting á Q1 2014 er 265 m.kr.

Stækkun félagsins og horfur

Uppbygging og stækkun eignasafns félagsins hefur gengið í samræmi við áætlun og fjárfestingastefnu þess.

Þann 28. apríl sl. lauk kaupum félagsins á Klasa Fasteignum ehf. Samkvæmt niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem birt var þann dag, „var ekki talin forsenda til að hafast frekar að í því máli“. Í framhaldi var heimild í 4. gr. samþykkta félagsins nýtt og hlutafé í Reginn hækkað um 128.700.000 krónur að nafnverði . Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gilti ekki um hið nýja hlutafé. Hlutafjáraukningunni var ráðstafað sem greiðslu fyrir hlutafé í Klasa Fasteignum ehf. á genginu 13,63 krónur á hlut, í samræmi við kaupsamning þar að lútandi frá 21. desember 2013. Samhliða kaupum var nafni hins keypta félags breytt í RA 5 ehf.

Hlutafé félagsins var aukið á tímabilinu sbr. tilkynning frá 30. apríl sl. Hlutafé í Regin fyrir hlutafjáraukninguna var 1.300.000.000 krónur að nafnvirði en er að henni lokinni 1.428.700.000 krónur að nafnvirði.

 

Horfur í rekstri og endurfjármögnun félagsins

Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar eru um annað en að áætlanir félagsins standist.

Við árslok 2013 tilkynnti félagið um skilmála varðandi endurfjármögnun á Reginn Atvinnuhúsnæði ehf. Frágangur þeirrar endurfjármögnunar fór fram á tímabilinu. Fjármögnunin er verðtryggð með jöfnum afborgunum til 30 ára og ber 3,85% fasta vexti en gjalddagar vaxta og afborgana eru tvisvar á ári. Heimilt er að greiða upp lánið eftir 5 ár. Lánið hefur verið nýtt til uppgreiðslu óhagstæðri lána og lána sem falla á gjalddaga seinna á árinu. Heildarstærð skuldabréfaflokksins er 9,5 milljarðar og var sala á öllum flokknum lokið í einu. Skuldabréf tengd fjármögnuninni verða skráð í Kauphöll Íslands, Nasdaq OMX Iceland en Íslandsbanki verður umsjónaraðili skráningar. Lánveitandi og útgefandi eignatryggðu skuldabréfanna er REG3A, fagfjárfestasjóður en rekstraraðili sjóðsins er ALDA sjóðir hf. Áður hafði félagið lokið við endurfjármögnun á Egilshöll (Knatthöll og Kvikmyndahöll) og Smáralind (Eignarhaldsfélagið Smáralind) árið 2012.

 

Kynning á félaginu

Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar á morgun miðvikudaginn 28. maí kl. 16:00 í Ármúla 4-6. Helgi S. Gunnarsson forstjóri félagsins mun kynna afkomu fyrsta ársfjórðungs 2014 og svara spurningum. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/812cdb405bc645ceb88e500f216e207f1d

Hægt er að nálgast árshlutareikning vegna fyrsta ársfjórðungs og kynningargögn á www.reginn.is/fjarfestar/

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262


Reginn hf. - Arshlutauppgjor Q1 2014.pdf
Reginn hf. - Kynning a uppgjori Q1 2014.pdf
Reginn hf - Frettatilkynning - Q1 2014 - 27052014.pdf