Icelandic
Birt: 2014-02-20 14:24:28 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Reginn hyggur á stækkun Egilshallar

Samþykkt var í Borgarráði í dag 20. febrúar að ganga til samninga við Reginn hf. um að fimleikahús verði reist við Egilshöll. Reginn mun eiga þá byggingu og leigja til Reykjavíkurborgar eins og önnur mannvirki við Egilshöll. Fimleikahúsið ásamt tengibyggingu við núverandi mannvirki verður um 2.250 m2.

Áætlað er að hönnun og bygging fimleikahúss verði boðin út í alútboði og gert er ráð fyrir að húsið verði fullgert að hausti 2015. Samhliða hefur Reginn hafið undirbúning og viðræður við aðila um ýmiss konar nýja þjónustu og starfsemi í núverandi byggingum við Egilshöll sem fyrirhugað er að verði þar. Þetta er t.d. einkarekinn leikskóli með áherslu á íþróttir og hreyfingu og ýmsa þjónustu tengda íþróttum og heilsu.

Nýjar fjárfestingar í Egilshöll, vegna samnings við Reykjavíkurborg, eru áætlaðar um 600 m.kr. og hafa þegar verið fjármagnaðar. Áhrif þess samnings á EBITDA Regins eru innan við 2 % til hækkunar.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262