Kynning vegna kauptilboðs Regins hf. í Eik fasteignafélag hf.
Þann 5. september sl. lagði Reginn fram tilboð í 100% hlutafjár í Eik fasteignafélagi.
Í tengslum við tilboðið hefur Reginn tekið saman kynningu þar sem farið er yfir möguleg áhrif og ávinning þeirra viðskipta sem gætu falist í sölu hlutafjár Eikar til Regins hf. Kynning þessi er byggð á birtum upplýsingum um félögin Reginn hf. og Eik fasteignafélag hf. sem og rekstrarspá Regins hf. fyrir árið 2014 sem var birt í Kauphöll 10. september sl.
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson
Forstjóri Regins hf.
S: 512 8900 / 899 6262
|