Icelandic
Birt: 2013-08-20 13:17:51 CEST
Reginn hf.
Fjárhagsdagatal

Reginn birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2013

Reginn mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2013, eftir lokun markaða mánudaginn 26. ágúst 2013.  

Af því tilefni býður Reginn til opins kynningarfundar þriðjudaginn 27. ágúst 2013 kl. 8:30 í verslunarmiðstöðinni Smáralind, 1. hæð.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  • Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins kynnir uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2013 og svarar spurningum að lokinni kynningu.
  • Jóhann Sigurjónsson fjármálastjóri Regins kynnir verklag og forsendur við virðismat hjá félaginu.
  • Sturla Gunnarsson framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélags Smáralindar kynnir stöðu og framtíð Smáralindar.

Boðið verður upp á veitingar fyrir fund.

Hægt verður að nálgast kynningarefni að kynningu lokinni á http://www.reginn.is/fjarfestar/

Skráning á kynningarfundinn fer fram  í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri  – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262

Heiða Salvarsdóttir – Fjárfestatengill  - heida@reginn.is - S: 512 8911 / 697 9399