Icelandic
Birt: 2013-05-27 20:51:48 CEST
Reginn hf.
Reikningsskil

Árshlutareikningur Regins fyrstu þrjá mánuði ársins 2013

Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar til 31. mars 2013 var samþykktur af stjórn þann 27. maí.

·         Rekstrartekjur námu 882 milljón króna.

·         Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 524 milljónir króna.

·         Hagnaður eftir  tekjuskatt nam 243 milljónum króna.

·         Vaxtaberandi skuldir voru 20.531  milljónir króna í lok tímabilsins samanborið við 19.297 milljónir kr. á sama tímabili í fyrra.

·         Handbært fé frá rekstri nam 440 milljónum króna.

·         Fjárfestingareignir voru metnar á 32.790 milljónir króna

·         Eiginfjárhlutfall er 33%.

·         Hagnaður á hlut á var 0,19 samanborðið við 0,11 árið áður.

 

Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.) Fjöldi hluthafa í byrjun maí er 933.

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á fyrsta ársfjórðungi ársins 2013 var góð og í samræmi við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 882 milljón króna og þar af námu leigutekjur 761 milljónum króna. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir nam 524 milljónum króna eða sem nemur 69% af leigutekjum sem er í samræmi við markmið félagsins fyrir þennan ársfjórðung.

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok fyrsta ársfjórðungs 2013 átti Reginn 34 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var 170 þúsund fermetrar og þar af voru 150 þúsund útleigjanlegir fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins var yfir 96%. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við gerð ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt framtíðar sjóðsflæði einstakra eigna. Til að árshlutauppgjör félagsins endurspegli rétta afkomu hverju sinni er í tengslum við árshlutauppgjör færð matsbreyting. Matsbreyting á tímabilinu er 366 milljónir króna.

Stækkun félagsins og horfur

Í febrúar 2013 var gerð breyting á fjárfestingastefnu félagsins, lögð var frekari áhersla á sterkt eigiðfé,  skýra arðsemiskröfu og öryggi í fjárfestingum.  Í markmiðum  félagsins er gert ráð fyrir að eignasafn félagsins allt að tvöfaldist á næstu fimm árum.

Frá hausti 2012 hefur verið unnið að stækkun og styrkingu á eignasafni félagsins. Á því tímabili hafa verið gerðir samningar um kaup á fimm minni fasteignafélögum og tveimur fasteignum, hluti þessa kaupa er frágenginn en hluti í vinnslu sbr. fyrri tilkynningar til Kauphallar. Þessi kaup sem öll eru í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins, styrkja tekjugrunn og bæta arðsemi og afkomu.  Ekki hefur þurft að auka eigið fé félagsins við þessi kaup en áætlað er að eiginfjárhlutfall verði um 32% þegar þessi kaup eru að fullu um garð gengin . Að loknum þessum kaupum verður fjöldi fasteigna í eigu félagsins 44 og heildar stærð fasteigna um 189 þús. m2.

Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar eru um annað en að áætlanir félagsins standist.

Um félagið

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði. Félagið er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.). Félagið tók til starfa vorið 2009.

 

Á vef félagsins www.reginn.is/fjarfestar/arshlutareikningar er kynning á 3 mánaðar uppgjöri félagsins.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262.


Reginn hf. - Arshlutareikningur 31.3.2013 - undirritaur.pdf
Reginn hf. - Frettatilkynning - Q1-2013.pdf