Icelandic
Birt: 2013-04-23 16:04:14 CEST
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um undirritun á kaupsamningi við fasteignafélag

Eftir lokun markaðar 14. febrúar s.l. sendi Reginn hf., frá sér tilkynningu  um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum.   

Öllum fyrirvörum hefur verið eytt hvað varðar kaup á fasteignafélaginu, Almenna byggingafélagið ehf.  Undirritaður var kaupsamningur milli Regins hf. og Almenna byggingafélagsins í dag, 23 apríl.  Almenna byggingafélagið á hluta Fellsmúla 26, í Reykjavík. Stærð eignarhlutar félagsins er 1.546 m2.

Með þessum kaupum hefur verið gengið frá kaupum á 3 af 4 fasteignafélögum í tengslum við ofangreind viðskipti. Ekki hefur verið gengið frá kaupsamningi við fasteignafélagið VIST ehf.  Verið er að vinna áfram í því máli og verður sú niðurstaða tilkynnt þegar hún liggur fyrir.

Kaup þessi fylgja fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut félagsins í skrifstofuhúsnæði.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262