Icelandic
Birt: 2013-03-22 18:06:49 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um undirritun leigusamnings við Verkís og kaup á tveimur fasteignafélögum

Eftir lokun markaðar 14. febrúar s.l. sendi Reginn hf., tilkynningu um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum.   

Nú hefur öllum fyrirvörum verið eytt varðandi leigusamning og undirrituðu Reginn A1 ehf., dótturfélag Regins hf. og Verkfræðistofan Verkís hf., leigusamning um fasteignina að Ofanleiti 2 í dag 22. mars. Leigusamningurinn er til 20 ára. Með þessu móti verður Verkís þriðji stærsti leigutaki félagsins og leigusamningurinn með þeim lengstu hjá félaginu.  Fasteignin Ofanleiti 2 er alls 8.012 m2 að stærð.

Verkís er rótgróið ráðgjafafyrirtæki sem rekur uppruna sinn til ársins 1932 og er því elsta verkfræðistofa landsins.

Öllum fyrirvörum hefur verið eytt hvað varðar kaup á fasteignafélögunum Stórhöfða ehf. og Goshóli ehf. Undirritaður var kaupsamningur milli Regins hf. og áðurnefndra fasteignafélaga í dag, 22 mars. Fasteignafélögin eiga hluta Suðurlandsbrautar 4, í Reykjavík. Stærð eignarhluta er 2.608 m2.

Ekki hefur verið gengið frá kaupsamningi við fasteignafélögin Almenna byggingarfélagið ehf. og VIST ehf. Verið er að vinna áfram í því máli og verður sú niðurstaða tilkynnt þegar hún liggur fyrir.

Kaup þessi fylgja fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut félagsins í skrifstofuhúsnæði.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262