Icelandic
Birt: 2013-02-14 18:55:12 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. – Tilkynning um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum í kaup á fasteignafélögum með fyrirvörum.

Reginn hf. og Verkfræðistofan Verkís hf.  kt.  611276-0289 hafa undirritað leigutilboð um fasteignina Ofanleiti 2, Reykjavík sem er í eigu Regins hf. Ofanleiti 2 er alls 8.012 m2 að stærð.  Samkvæmt samkomulaginu verður húsnæðið afhent í áföngum.  Sömuleiðis verður lagt út í framkvæmdir samkvæmt skilalýsingu milli aðila.  Undirritun leigutilboðs milli aðila er með fyrirvörum þar á meðal um afhendingartíma, umfang breytinga og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar vegna kaupa á núverandi eignum sem hýsa starfsemi Verkís.  Að auki er fyrirvari um samþykki stjórna félaganna.

Reginn hf. hefur samhliða gert tilboð í kaup á ýmsum fasteignafélögum sem eiga  fasteignir sem hýsa núverandi starfsemi Verkíss. Þetta eru eftirfarandi félög:

Stórhöfði ehf. og Goshóll ehf. en félögin eiga hluta Suðurlandsbrautar 4, Reykjavík.

Almenna byggingarfélagið ehf. en félagið á hluta Fellsmúla 26 í Reykjavík.

VIST ehf. en félagið á eignirnar Ármúli 4 og 6 í Reykjavík. Hluta Austurvegs 8a og 10, á Selfossi.  Kaupvang 3b á Egilsstöðum og hluta Hafnarstrætis 1 á Ísafirði.

Samþykkt leigutilboð milli aðila nær einnig til eigna á Ísafirði, Egilstöðum og Selfossi.

Tilboðin í fasteignafélögin hafa verið samþykkt en eru með fyrirvörum s.s. um áreiðanleikakönnun,  samþykki  hluthafa félaganna og stjórn Regins hf.

Aðilar stefna að því að fyrir liggi ákvörðun þann 8. mars nk. um hvort fyrirvarar verði felldir niður.  Á það við bæði um leigutilboðið og kaup á fasteignunum.

Áætluð aukning á EBITDA samstæðunnar vegna útleigu á Ofanleiti 2 til eins aðila er um 4%.

Ekki liggur fyrir um nákvæm áhrif á EBITDA Regins samstæðunnar vegna eigna sem verið er að kaupa og eru ekki að fullu útleigðar nú, en gera má ráð fyrir að áhrifin verði allt að 5 % hækkun á EBITDA félagsins.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262