Icelandic
Birt: 2013-01-17 10:40:00 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting - Kaup Regins hf. á fasteigninni við Ofanleiti 2 - Beiðni um skuldaraskipti - Birt 16.1.2013 - 18:00

Vísað er í tilkynningu Regins hf. þann 20. desember 2012 um samþykki kauptilboðs með fyrirvara.

Kaupandi fasteignarinnar , Reginn A1 ehf., er  dótturfélag Regins atvinnuhúsnæðis ehf. sem er í eigu Regins hf.  Kaupandinn hefur ákveðið að óska eftir yfirtöku á áhvílandi láni sem hvílir á fasteigninni.  Lánveitandi er OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður, sjóður sem er í vörslu Stefnis hf.  Þetta er eini fyrirvarinn sem út af stendur vegna kaupanna.  Gert er ráð fyrir að sá tímarammi sem nefndur var í tilkynningu Regins frá 20. desember 2012 um undirritun kaupsamnings í janúar 2012 gangi eftir.  Ef skuldaraskiptin verða ekki samþykkt þá er ljóst að ekki muni verða af kaupunum.  Vísað er í  tilkynningu frá Fagfjárfestasjóðnum OFAN SVÍV sem birt var 28. desember s.l. um skilmála skuldabréfaflokksins auk tilkynningar frá Fagfjárfestasjóðnum OFAN SVÍV frá 16. janúar um sama mál.

Í fyrri tilkynningu kom fram að tilkynningin frá 16. janúar væri frá Stefni hf. en hið rétta er að tilkynningin er frá Fagfjárfestasjóðnum OFAN SVÍV. Þess skal getið að Fagfjárfestasjóðurinn OFAN SVÍV er í umsýslu Stefnis hf.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262