Icelandic
Birt: 2012-12-18 15:05:48 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Lánsfjármögnun Smáralindar lokið

Í tilkynningu Regins hf. þann 19. nóvember sl. kom fram að samið hefði verið um endurfjármögnun félagsins. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að áreiðanleikakönnun og hefur hún farið fram án athugasemda og umræddri lánsfjármögnun því lokið. Umrætt lán er að fjárhæð 9 milljarðar. Fjármögnunin er verðtryggð til 30 ára og ber 3,95% fasta vexti. Heimilt er að greiða upp lánið eftir 5 ár. Fjármögnunin er með jöfnum afborgunum og greiðsluferlið er 30 ár. Hluti af láninu eða um 1,5 milljarður verður nýtt til þess að greiða upp óhagstæðari lán í Regins samstæðunni. Skuldabréf tengd fjármögnuninni verða skráð í Kauphöll Íslands, Nasdaq OMX Iceland. Lánveitandi og útgefandi skuldabréfa er REG 2 Smáralind fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf. 

Reginn hf. er öflugt skráð fasteignafélag, þar sem Smáralind er stærsta einstaka eign félagsins. Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins um 62 þúsund fermetrar, en þar af eru rúmlega 41 þúsund leigjanlegir fermetrar. Útleiguhlutfall Smáralindar er 98%. Í Smáralind eru 98 leigutakar sem eru með leigusamninga um verslun, veitingar, þjónustu, kvikmyndahús og skemmtigarð. Leigjanlegum fermetrum hefur fjölgað í Smáralind síðustu ár á kostnað sameignarfermetra. Við Smáralind eru um 3.000 bílastæði, bæði í bílastæðishúsum og umhverfis verslunarmiðstöðina.

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins telur 31 fasteign og er heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins um 158 þúsund fermetrar, yfir 94% leigjanlegir fermetrar eru í útleigu.

Stefnir hf. er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 340 milljarða króna í virkri stýringu. Stefnir hefur meðal annars sérhæft sig á sviði eignatryggðrar fjármögnunar og unnið fjölmörg verkefni á því sviði.

Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262