Icelandic
Birt: 2012-11-12 16:30:11 CET
Reginn hf.
Hluthafafundir

Hluthafafundur Regins hf. verður haldinn 4. desember 2012

Stjórn Regins hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 4. desember 2012 og hefst stundvíslega kl. 15:00.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

1. Kosning tveggja nýrra stjórnarmanna

2. Tillaga lögð fram um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum

3. Önnur mál

Dagskrá og endanlegar tillögur munu vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, viku fyrir hluthafafundinn.

Upplýsingarnar verða auk þess aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.reginn.is.

Fundargögn verða afhent á fundarstað.

 

Kópavogur, 12. nóvember 2012

Stjórn Regins hf.