Icelandic
Birt: 2012-10-16 23:29:30 CEST
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Kaup Regins hf. á fasteigninni Hafnarstræti 83-89 sem hýsir Hótel KEA lokið

Í tilkynningu Regins hf. þann 4. september síðastliðinn kom fram að Reginn hf. hefði gert samkomulag um kaup á fasteigninni sem hýsir Hótel KEA þ.e Hafnarstræti 83-89 á Akureyri með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.  Sú áreiðanleikakönnun hefur nú farið fram án athugasemda.  Kaupsamningur milli Regins hf. og Krypton ehf.  um fasteignina  var undirritaður í dag 16. október.  Jafnframt var undirritaður 14 ára leigusamningur við Keahótel ehf. Kaupverðið er trúnaðarmál en áhrif kaupanna er aukning á EBITDU félagsins yfir 5%  en áhrif  fjárfestingarinnar  munu verða  lítil  á stjórnunarkostnað félagsins. 

Hótel Kea fellur vel að fjárfestingarstefnu félagsins en eins og kom fram í skráningarlýsingu félagsins þá stefnir Reginn hf. á að  auka breiddina í tegundum atvinnuhúsnæðis og hluti af því er að fjárfesta í verkefnum tengdum ferðamannaiðnaði.

Hótel Kea er eitt af þekktustu kennileitum Akureyrar. Hótel Kea er eina fjögurra stjörnu hótelið á Akureyri og er staðsett í hjarta bæjarins þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, söfn og veitingastaði. Hótelið býður upp á velbúin herbergi, veitingastað, bar, ráðstefnu-  og fundasali.

Kaupin hafa nú þegar verið fjármögnuð.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262