Icelandic
Birt: 2012-08-14 19:44:39 CEST
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Breytingar í stjórn dótturfélags Regins hf.

Á aðalfundi í dag 14. ágúst 2012 hjá  Eignarhaldsfélagi Smáralindar ehf, kt; 550496-2329, dótturfélagi Regins hf. urðu þær breytingar á stjórn félagsins að úr stjórn fóru Hjördís Halldórsdóttir hrl., meðstjórnandi og stjórnarmaður í Reginn hf. og Anna Sif Jónsdóttir , meðstjórnandi og sviðsstjóri fjármálasviðs Regins hf.   Helgi S Gunnarsson, forstjóri Regins og núverandi stjórnarformaður Eignarhaldsfélags Smáralindar verður einn stjórnarmaður í félaginu.  Í varastjórn var skipuð Katrín Sverrisdóttir, sviðsstjóri Rekstrasviðs Regins hf.

 

Með þessum breytingum  verður  samræmi í skipun stjórna dótturfélaga Regins hf.